Aðstoðar lögreglu var óskað vegna ráns í Árbæjarhverfi í gærkvöld eða í nótt. Einnig var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í Hafnarfirði, að því er segir í dagbók lögreglunnar.Lögreglukonur að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚVAð öðru leyti virðast störf lögreglumanna að mestu hafa snúist um umferðina, meðal annars árekstur og afstungu í Laugaráshverfi, tvö umferðarslys í Kópavogi og kvartanir vegna þess hvernig bifreiðum var lagt í miðborginni.