Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir háttsettir liðsmenn Hezbollah sagðir drepnir í árásum á Beirút

Ísraelsher segir tvo háttsetta liðsmenn Hezbollah liggja í valnum eftir tvær aðskildar loftárásir á líbönsku höfuðborgina Beirút.Íbúðahverfi í sunnanverðri Beirútborg.EPA / WAEL HAMZEHHerinn hefur ekki enn nafngreint mennina. Fréttamenn AFP og Reuters greina frá þungum árásum á Beirút og háværum sprengjugný. Sjúkrabílar eru sagðir á þönum um borgina. Heilbrigðisráðuneyti Líbanons segir minnst sjö hafa verið drepna og á þriðja tug særðan í loftárásum Ísraels á úthverfi í Beirút sunnanverðri í kvöld.
Tveir háttsettir liðsmenn Hezbollah sagðir drepnir í árásum á Beirút

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta