Emmanuel Macron forseti Frakklands bindur vonir við að landið verði með þeim fyrstu innan Evrópusmabandsins til þess að meina börnum yngri en 15 ára aðgang að samfélagsmiðlum.Frumvarpið er ekki óumdeilt og hafa efri og neðri deildir franska þingsins ekki enn sammælst um eina nálgun. Neðri deild franska þingsins hefur þegar samþykkt frumvarpið en öldungadeild þingsins tekur frumvarpið til skoðunar eftir viku. Þegar hafa þeir vakið athygli á nokkrum atriðum sem myndu tefja afgreiðslu málsins á þinginu. VILJA GREINA SKAÐLEGA SAMFÉLAGSMIÐLA FRÁ ÖÐRUM Undirnefnd á vegum öldungadeildarinnar hefur meðal annars lagt til að notast verði við tveggja þrepa kerfi, þannig að greinarmunur verði gerður á miðlum sem eru taldir skaðlegir líkamlegum, andlegum eða siðferðislegum þroska barns og öðrum samf