Eldur kviknaði í bíl við Árbæjarkirkju í kvöld og barst yfir í annan sem stóð við hlið hans. Annar bíllinn er ónýtur og hinn mikið skemmdur. Fólk var ekki í hættu vegna brunans. Ekki er vitað hver eldsupptökin eru að sögn varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Tilkynning barst kortér fyrir tólf, slökkvistörf gengu vel og var þeim lokið skömmu eftir miðnætti.