Viðræður um myndun nýrrar landsstjórnar í Færeyjum hófust í gær undir forystu Beinis Johannesen, formanns Fólkaflokksins, stærsta sigurvegara þingkosninganna. Beinir gæti orðið yngsti lögmaður Færeyja, aðeins 29 ára gamall. Færeyingar fengu einnig yngsta þingmanninn í sögu Lögþingsins, tvítuga konu.