Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt beiðni stjórnar Brákarhlíðar í Borgarnesi um breytingu á öllum dvalarrýmum heimilisins í hjúkrunarrými. Þar með verður Brákarhlíð alfarið hjúkrunarheimili, með 58 hjúkrunarrýmum, í stað þess að vera blandað dvalar- og hjúkrunarheimili. 17 dvalarrými verða hjúkrunarrými eftir breytingar.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brákarhlíð á Facebook. Stjórnendur Brákarhlíðar höfðu kvartað yfir því hve langan tíma umsóknin um breytinguna tæki. Umsóknin var formlega send heilbrigðisráðuneytinu í fyrra.„Biðlisti er eftir hjúkrunarrýmum á þjónustusvæði Brákarhlíðar, líkt og á við almennt á landinu. Til að mæta þessari þörf hafa stjórn og stjórnendur lagt ríka áherslu á nauðsyn þess að heimild fáist frá stjórnvöldum til að breyta dvalarrýmum í hjúkrunarrými. Með fyrir