Þessi vika, frá pálmasunnudegi fram á laugardag fyrir páska, á sérstakt heiti sem hefur litla skírskotun til nútímans og ekki allir vita hvert er. Þjóðfræðingur segir þó ólíklegt að hún fái nýtt nafn.Vikan fyrir páska var í kaþólskum sið gjarnan nýtt til íhugunar. Þá átti að halda sig til hlés og takmarka hávaða.„Það mátti ekki hringja kirkjuklukkunum,“ segir Dagrún Ósk Jónsdóttir, aðjúnkt í þjóðfræði við Háskóla Íslands. TRÉÁHALD EÐA KERTASTJAKI Og þá þurfti að leita leiða til að dempa hljóð klukknanna. „Áhald sem var notað til að framkalla annars konar hljóð. Úr tré,“ segir Dagrún.Það er ein skýringin á nafni vikunnar. En þær eru fleiri. „Eða þá að þetta tengist því að ljósin hafi verið slökkt, slökkt á kertum og að þetta hafi verið kertastjaki eða annað áhald til að slökkva á þeim.“