Bandaríska geimferðastofnunin NASA stefnir á mannaða ferð til tunglsins á morgun. Fari allt að óskum verður þetta í fyrsta sinn í yfir fimmtíu ár sem mannað geimfar fer til tunglsins. 54 ÁR FRÁ SÍÐUSTU TUNGLFERÐ Síðasta mannaða ferðin til tunglsins var árið 1972. Og nú, 54 árum síðar, fer annað teymi til tunglsins; Artemis annar, skipað geimförum NASA, þeim Reid Wiseman, Victor Glover og Christinu Koch, auk Jeremy Hansen frá kanadísku geimferðastofnuninni [Canadian Space Agency].Hægt verður að fylgjast með öllu ferlinu, meðal annars á YouTube-síðu NASA.Geimfarinu Orion verður skotið á loft frá Kennedy-geimferðastöðinni í Flórída. Það fer umhverfis tunglið og heldur svo heim á ný.Geimfararnir fá því ekki þann heiður að bætast í hinn fámenna hóp sem gengið hefur á tunglinu.Bandaríska geim