Heilbrigðisráðherra segir ný hjúkrunarrými í Urðarhvarfi í Kópavogi stórt skref í að leysa vanda bráðamóttöku og heilbrigðiskerfisins í heild. 97 ára íbúa líst vel á nýju heimkynnin og segist sofa þar eins og engill.Til stóð að opna í Urðarhvarfi í maí, en því var flýtt, enda hefur staða bráðamóttöku Landspítala verið afar slæm síðustu vikur - sem er að mestu til komin vegna þess að aldraðir, sem hafa lokið meðferð þar fá ekki pláss á hjúkrunarheimili. 110 RÝMI Á SEX HÆÐUM Heimilið, sem er í húsinu að Urðarhvarfi 16, er rekið af Heilsuvernd sem í dag undirritaði samning um starfsemina við Sjúkratryggingar. Það er á sex hæðum og þegar allt er tilbúið verða þar 110 rými, sem ætluð eru til skammtímavistunar þar til fólkið fær varanleg pláss á hjúkrunarheimili.Í samningi Heilsuverndar og Sj