Nýr oddviti Flokks fólksins í Reykjavík segir að ekki sé hægt að bendla hann við flokkaflakk eftir að hafa skipt um flokk fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann segir mestu máli skipta að mikilvæg málefni hljóti hljómgrunn. Það sé gott að fá annað tækifæri eftir að hafa afplánað 16 árum í fangelsi.