Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tugir heyrnarskertra barna ógreindir: „Það eru börn þarna úti sem þurfa aðstoð“

Árið 2012 var heyrnarskimun við upphaf grunnskólagöngu hér á landi hætt. Embætti landlæknis taldi þá að ekki væri nauðsynlegt að skima heyrn allra barna óháð heilsu þeirra. Síðan þá hefur börnum sem eru í eftirliti vegna heyrnarskerðingar fækkað, farið úr 250 árið 2015 í 220 árið 2024.„Miðað við fólksfjölgun ættum við að vera með nær 300 börn í eftirliti hjá okkur. Miðað við þetta þá eru milli 50 og 80 börn einhvers staðar sem eru ekki í eftirliti og ættu að vera það,“ segir Eva Albrechtsen háls-, nef- og eyrnalæknir í Kveik.„Það eru börn þarna úti sem þurfa aðstoð og við myndum mjög gjarnan vilja ná til þeirra.“Þá hafa 15-20 börn í hverjum árgangi greinst seint á síðustu árum, sem er óeðlilega mikið að mati Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar.„Við erum alltaf að fá nokkur börn á ári sem hefð
Tugir heyrnarskertra barna ógreindir: „Það eru börn þarna úti sem þurfa aðstoð“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta