Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

SÞ telja ísraelsk lög um aftökur vera stríðsglæpi

Sameinuðu þjóðirnar segja að beiting laga, sem þing Ísraels samþykkti í gær, sé stríðsglæpur. Lögin mismuni fólki á grimmilegan hátt. Þá segir mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Turk, að lögin fari gegn skuldbindingum Ísraels samkvæmt alþjóðalögum. Þingið samþykkti í gær að taka upp dauðarefsingu yfir þeim sem fremja það sem Ísraelar skilgreina sem mannskæð hryðjuverk. Lögin gilda þó aðeins um Palestínumenn. Samkvæmt lögunum skal fólk tekið af lífi með hengingu innan 90 daga frá dómsuppkvaðningu. Nokkur Evrópuríki hafa gagnrýnt lögin, sem og fjöldi mannréttindasamtaka, þar á meðal Amnesty International og Mannréttindavaktin. Efnt var til mótmæla gegn lögunum í Jerúsalem í dag.AP / Mahmoud Illean
SÞ telja ísraelsk lög um aftökur vera stríðsglæpi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta