Erlendir leigjendur velja sér smærri íbúðir en innlendir leigjendur. Þeir borga þó ekki endilega lægri leigu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS.Í skýrslunni er fjallað um stöðuna á leigumarkaði á Íslandi í dag. Þar kemur fram að leigumarkaðurinn á Íslandi hafi stækkað samhliða örri fólksfjölgun og hækkunum í húsnæðisverði á undanförnum árum. LEIGJENDUR Í VERRI STÖÐU EN HÚSNÆÐISEIGENDUR Fram kemur í skýrslunni að húsnæðisaðstæður leigjenda hér á landi eru að jafnaði lakari en þeirra sem búa í eigin húsnæði og að mörgu leyti lakari en húsnæðisaðstæður leigjenda á hinum Norðurlöndunum.Húsnæðisstuðningur stjórnvalda við leigjendur hér á landi er þó í megindráttum sambærilegur því sem þekkist í samanburðarlöndum.Þar er jafnfr