Mögulegt er að einhverjir ferðamenn gætu fælst frá því að koma til Íslands sökum verðhækkana á þjónustu á ákveðnum tíma. Almyrkvi verður á sólu þann 12. ágúst og er mikið af hótelgistingu á landinu þegar uppbókuð í kringum þessa daga. Þá freistast margir til þess að leigja út hús sín og íbúðir á uppsprengdu verði.„Það verður örugglega búhnykkur fyrir einhverja en það er spurning hver heildaráhrifin verða af þessum viðburði, sagði Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, í Silfrinu í gær.„Þetta hefur þau áhrif að þjónusta selst á margföldu verði, þessa tvo, þrjá, fjóra daga í kringum sólmyrkvann,“ segir hún. Dæmi séu um að fólk sé tilbúið að borga háar upphæðir til þess að geta verið hér á landi þegar hann á sér stað.Fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustu