Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ég hef verið trúr mínum málefnum alla tíð“

Guðmundur Ingi Þóroddsson segir málefni sín ríma vel við málefni Flokks fólksins. Hann leiðir lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, sem kynntur var í dag. Guðmundur tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í borginni í janúar, endaði í 7. sæti en fékk ekki sæti á lista.„Málefnin hjá mér hafa alltaf ráðið för og ég hef verið trúr mínum málefnum alla tíð og ég get nú ekki sagt að ég hafi oft skipt um flokka þar sem þetta er í fyrsta skipti. En ég fæ meira svigrúm fyrir mín málefni og málefni minnihlutahópa og jaðarsettra innan Flokks fólksins og það er það sem skiptir öllu máli,“ segir Guðmundur.Í næstu sætum lista Flokks fólksins í borginni eru Einar Sveinbjörn Guðmundsson, varaborgarfulltrúi, Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, Sigurveig Jóhannsdóttir og Rúnar Sigurjónsson.Oddvitinn segis
„Ég hef verið trúr mínum málefnum alla tíð“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta