Lögmenn mannsins sem grunaður er um að hafa skotið Charlie Kirk til bana hafa beðið um að fyrirtöku í málinu gegn honum verði frestað um hálft ár. Segjast þeir þurfa tíma til að fara betur yfir sönnunargögn sem tengjast lífsýnum sem fundust á rifflinum sem talinn er hafa verið notaður.