Snekkjan La Datcha sem meinuð var hafnarkoma á Akureyri er enn í íslenskri landhelgi. Hún er sem stendur við akkeri nærri Hólmavík en Landhelgisgæslan gerði ráð fyrir að snekkjan yrði komin út fyrir 12 sjómílur frá landi fyrir þann 30. mars.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að smávægileg vélarbilun hafi komið upp í skútunni. Áhöfn hennar hafi óskað eftir því að fá að leggjast við akkeri á meðan gert væri við hana áður en haldið væri frá landinu.Snekkjunni var upprunalega meinuð hafnarkoma á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi fyrir innrás þess í Úkraínu sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja.Hún fékk síðar meir leyfi til þess að sækja olíu og neyðarvistir áður en haldið var þaðan undir eftirliti Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar á Akureyri