Guðmundur Ingi Þóroddsson leiðir framboðslista Flokks fólksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Einar Sveinbjörn Guðmundsson varaborgarfulltrúi skipar annað sætið og Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir grunnskólakennari er í þriðja sæti. Fjórða sætið skipar Sigurveig Jóhannsdóttir ráðgjafi ungmenna með fjölþættan vanda, Rúnar Sigurjónsson vélvirki og varaborgarfulltrúi skipar fimmta sætið og Lilja S. Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur er í...