Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Taka við hálfri milljón bóka á ári

„Fólk vill eiga bækur, við sjáum það alveg,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu. „Góði hirðirinn er hluti af Sorpu og þær bækur sem fara inn í nytjagámana fyrir Góða hirðinn, þær standa sennilega á hálfri milljón á ári. Við förum örugglega í gegnum 500 þúsund bækur í Góða hirðinum. Af þeim seljast svona um 170 þúsund.“Restin endar því í pappírsendurvinnslu.Um helgina birti Hallgrímur Helgason rithöfundur mynd á Facebook sem sýnir fjölda bóka, þar á meðal eftir Þórberg Þórðarson, í pappírsgámi. Bækurnar voru sem sé á leið í ruslið. Í kjölfarið hefur skapast mikil umræða um bækur og bókmenntaarfinn og sitt sýnist hverjum.Á meðan sumir benda á hve sorgleg örlög það séu fyrir bækur að enda á haugunum segja aðrir þetta óumflýjanlegt. Það sé jú ekki hægt a
Taka við hálfri milljón bóka á ári

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta