Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Guðmundur Ingi verður oddviti Flokks fólksins

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu félags fanga, var í dag kynntur sem oddviti Flokks fólksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Efstu sætin voru kynnt í Tjarnarbíói í dag.Guðmundur Ingi var formaður Rósarinnar sem er landsfélag jafnaðarfólks og aðildarfélag Samfylkingarinnar. Hann tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í borginni í janúar, lenti í 7. sæti en fékk ekki sæti á lista.Rósin sleit þá samstarfi við fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík og hóf viðræður við Vinstrið, framboð undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur. Þeim lauk án árangurs og ákveðið var að Rósin styddi Samfylkinguna.Síðan var Guðmundur Ingi orðaður við framboð Flokks fólksins í borginni sem úr varð.Efstu fimm sæti flokksins eru sem hér segir: 1. Guðmundur Ingi Þóroddsson 2. Einar
Guðmundur Ingi verður oddviti Flokks fólksins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta