Orðsending Dan Jörgensens, orkumálastjóra hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins var veganestið inn á fund orkumálaráðherra ESB-ríkjanna sem hófst eftir hádegið í dag og stendur enn.Í bréfinu, sem birt var í dag segir Jörgensen að það sé kominn tími til að gera ráðstafanir, því „við þurfum að vera viðbúin því að það verði langvarandi röskun á eldsneytisflutningum.“Eldsneytisverð hefur hækkað hressilega í Evrópu, sem og annars staðar í heiminum, vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og þeirrar röskunar sem verið hefur á flutningum á eldsneyti um Hormussundið.Jörgensen hvetur einnig aðildarríkin til að samræma aðgerðir til að bregðast við þessu ástandi og koma á framfæri tillögum til almennings til að draga úr notkun á eldsneyti - með áherslu á samgöngugeirann.Í bréfi framkvæmdastjórans er vísað