Ríkisborgari frá Kólumbíu var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og húsbrot í Reykjavík í október 2025.Auk fangelsisvistar þarf ákærði að greiða þolanda 2,5 milljónir króna í miskabætur og tæpar fjórar milljónir í málsvarnarlaun.Maðurinn var ákærður fyrir að hafa farið í heimildarleysi inn á heimili manns í kjallaraíbúð í Reykjavík. Hann gekk inn í svefnherbergi mannsins sem lá þar sofandi, veittist að honum og stakk hann ítrekað með hníf í höfuð og líkama.Í ákærunni segir að þolandi árásarinnar hafi vaknað og tekist að standa upp en við það hélt ákærði atlögunni áfram og kýldi hann með krepptum hnefa. Þolandi hlaut sentimetra sár á utanverða hægri kinn, bólgu á hægri kinn og fjögur sár á hægri öxl.Ákæran á hendur manninum sneri einnig að