Það var líf og fjör á Sjálandi í síðustu viku þegar margar af helstu ofurskvísum landsins komu saman til að taka góða æfingu. Þjálfararnir Anna Eiríks, Karitas María Lárusdóttir og Lilja Ketils stóðu fyrir öflugri æfingu og slökun og heilsukokkurinn Jana töfraði fram hollar veitingar.