„Þegar börn eru tekin svona út af heimilum sínum og vistuð þar sem þau eiga að vera örugg og eiga að vera að fara í skjól og í betri aðstæður, þá missa þau svolítið traust á stjórnvöldum. Í þeirra huga, alla vega þeirra sem ég er í samskiptum við í dag, þá skiptir þau ofboðlega miklu máli að þetta endurtaki sig ekki eða að minnsta kosti verði stöðvað og að á þau sé hlustað,“ segir Lilja Margrét Olsen sem er lögmaður rúmlega 20 barna sem bjuggu á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði á árunum 2009 til 2019.Lilja Margrét var til viðtals um fósturheimilið í Kastljósi í gær eftir að fjallað hafði verið um lögreglurannsókn sem fór fram á heimilinu á árunum 2019 til 2021 í fréttaskýringaþættinum Þetta helst.Í Þetta helst lýsti Aron Eiríksson, sem dvaldi á fósturheimilinu sem unglingur 2014 og 2015