Ríflega helmingur þeirra 29,4 milljarða króna sem varið var til auglýsingakaupa á Íslandi árið 2024 féll í skaut erlendra miðla. Nýjar tölur frá Hagstofu Íslands sýna að auglýsingakaup í erlendum miðlum nánast 26-földuðust milli áranna 2009 og 2024.Anna Kristín Kristjánsdóttir, formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA), segir að lengi hafi verið bent á þessa þróun.„Stærsta áhyggjuefnið er ekki bara hlutfallið heldur er það hraðinn,“ segir hún og vísar þar til þess að á sama tíma og auglýsingatekjur erlendra miðla margfölduðust varð aðeins átta prósenta vöxtur hjá íslensku miðlunum.Anna Kristín segir að ekki sé aðeins um fjölmiðlamál að ræða, heldur snerti auglýsingar margt. „Þetta er virðiskeðja. Þegar auglýsingafé flyst úr landi þá tapast störf – kvikmyndagerðarfólks, tónlistarfól