Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins kynnti í dag tillögur flokksins í efnahagsmálum. Meðal þess sem lagt er til er sala ríkiseigna fyrir 680 milljarða og skattalækkanir upp á 140 milljarða.Guðrún kynnti tillögurnar ásamt Jens Garðari Helgasyni, varaformanni, á blaðamannafundi í Valhöll eftir hádegi. Tillögurnar byggja á stjórnmálaályktun flokksráðsfundar sem haldinn var fyrr í mánuðinum og er markmið þeirra sagt að auka ráðstöfunartekjur heimila, bæta samkeppnishæfni á alþjóðavísu, draga úr umsvifum ríkisins og lækka skuldir. SKATTALÆKKANIR UPP Á 140 MILLJARÐA Flokkurinn metur skattalækkunartillögur sínar á 140 milljarða króna. Lagt er til eitt 35 prósenta skattþrep og hækkun persónuafsláttar upp í 100 þúsund á mánuði. Skattþrepin í dag eru þrjú. Þeir sem eru með tekjur