Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

45 kíló af kókaíni fundust í sendibíl

Lögregla lagði hald á 45 kíló af kókaíni í sendibíl sem kom með Norrænu á föstudag. Þetta herma heimildir fréttastofu. Það er mesta magn kókaíns sem tekið hefur verið hér á landi. Áður hefur verið reynt að smygla 100 kílóum til landsins, en efnin voru stöðvuð áður en þau komu til landsins.Lögreglan á Austurlandi greindi frá því í morgun að einn hefði verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna smyglsins. Hún greindi ekki frá því hversu miklu hefði verið smyglað eða hvers kyns fíkniefnum, aðeins að það væri umtalsvert magn.Lögregla og tollverðir voru flutt austur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til að aðstoða við aðgerðirnar.Einn maður var handtekinn, yfirheyrður og síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald í tvær vikur á meðan smyglið er rannsakað. Hann er vistaður í fangelsinu á Hólmsheið
45 kíló af kókaíni fundust í sendibíl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta