Undirritaður hefur verið samningur um rekstur og þjónustu í hjúkrunarrýmum að Urðarhvarfi 16. Samningurinn tekur til þjónustu í 100 hjúkrunarrýmum fyrir einstaklinga með gilt færni- og heilsumat sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og bíða eftir varanlegri dvöl á hjúkrunarheimili.