Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Skúli Tómas Gunnlaugssyni hjartalækni fyrir manndráp. Skúli Tómas var grunaður um að hafa borið ábyrgð á andláti sex sjúklinga sinna, en mál fimm þeirra voru felld niður, og gefin út ákæra í einu þeirra. Almar Möller, verjandi Skúla Tómasar, staðfestir í samtali við fréttastofu að hann gefin hafi verið út ákæra í einu máli. Skúli Tómas hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu og héraðssaksóknara síðastliðin fimm ár, vegna gruns um að hafa sett sjúklinga sína á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í lífslokameðferðir, að tilefnislausu. Hann var sviptur læknaleyfi sínu tímabundið en endurheimti það og hefur síðustu ár starfað á Landspítalanum. Tvö önnur sættu rannsókn, læknir og hjúkrunarfræðingur. Héraðssaksóknari felldi niður mál þeirra.Almar Möller s