Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Færri ferðir strætisvagna um páskana

Talsverðar breytingar verða á ferðum strætisvagna næstu daga vegna páskahátíðarinnar.Ferðir vagna Strætós á höfuðborgarsvæðinu dragast saman um páskana. Á skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum verða ferðir samkvæmt sunnudagsáætlun. Ferðir á laugardaginn verða eins og vant er og næturstrætó gengur eins og venjulega um páskahelgina.Landsbyggðarstrætó gengur samkvæmt sunnudagsáætlun á skírdag og annan í páskum en laugardagsáætlun föstudaginn langa og páskadag. Ferðir á leiðum 63, 64, 65 og 81 falla niður til og með 6. apríl. Leiðir 91, 92, 93 og 96 ganga ekki á rauðum dögum en verða farnar eins og venjulega á laugardag.Leið 94 gengur samkvæmt áætlun föstudaginn langa og annan í páskum en ekki skírdag og páskadag.Þetta kemur fram í yfirliti Strætós um strætósamgöngur um páskan
Færri ferðir strætisvagna um páskana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta