Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari hefur verið á þönum síðustu misseri. Hann leikur á yfir 100 tónleikum á ári vítt og breitt um heimskringluna auk þess sem hann gefur út undir merkjum Deutsche Grammophon.Í vikunni leikur Víkingur á þrennum tónleikum í Eldborgarsal Hörpu, á miðvikudag, skírdag og laugardag. Þetta eru útgáfutónleikar fyrir nýjustu plötu hans, Opus 109. Á efnisskránni er eitt af meistaraverkum Ludwigs van Beethovens, sónata í E-dúr Opus 109. Til viðbótar leikur hann nokkur fyrri verk tónskáldsins auk verka eftir Johann Sebastian Bach og Franz Schubert.Í stuttu stoppi á Íslandi, á milli tónleikaferðalaga í Evrópu og Bandaríkjunum, staldraði Víkingur við hjá Óla Palla í Rokklandi á Rás 2 til að ræða um ferilinn. Viðtalið er tekið upp í Stúdíói 12, þar sem píanistinn situr v