Forsvarsmenn samtaka á vinnumarkaði virðast samhljóma um að taka þurfi höndum saman um að ná niður verðbólgu, í anda þjóðarsáttarinnar 1990. Þá sameinuðust verkalýðsfélög, atvinnurekendur og ríkisvaldið um að ná niður þrálátri verðbólgu.Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, lýsir verulegum áhyggjum af auknu atvinnuleysi og háum stýrivöxtum.„Við höfum kallað eftir því að það verði gerð, hvort sem það heiti þjóðarsátt eða annað, að það eigi að mynda breiða samfylkingu til að reyna að vinna að því að ná þessu niður. Við erum búin að kalla eftir þessari vinnu í nokkurn tíma núna.“Þetta sagði Finnbjörn í samtali við fréttastofu í morgun. Í Silfrinu í gær hvatti Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, til þess að velt væri upp leiðum til að ná niður verð