Lögfræðingur telur mistök við forgangsröðun hjá Neyðarlínunni hafa valdið dauða föður skjólstæðinga hans. Eftir að sambýliskona hins látna hringdi og sagði að hann gæti ekki andað tók það um tuttugu mínútur fyrir fyrsta sjúkrabíl til að mæta á vettvang. Hann ætlar að leita til Sjúkratrygginga og krefst rannsóknar.