Hvöss vestanátt með éljum og skafrenningi getur valdið því að akstursskilyrði versna á Austurlandi og Austfjörðum í dag, einkum á fjallvegum. Lægð með snjókomu gengur allhratt yfir landið til norðausturs snemma í dag. Veðurstofan gaf út gular viðvaranir vegna storms með éljum eða skafrenningi á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum. Þær taka gildi klukkan tíu og falla úr gildi klukkan þrjú síðdegis á Austfjörðum og fjögur á Austurlandi að Glettingi.Snýst í vestan 8-15 m/s með éljum, en 15-23 um tíma austanlands með skafrenningi, einkum á fjallvegum. Hiti kringum frostmark.Breytileg átt 3-8 og stöku él á morgun, en vestan 10-15 á austanverðu landinu framan af degi. Vaxandi suðaustanátt síðdegis vestanlands og dálítil rigning eða snjókoma með hlýnandi veðri sunnan- og vestantil annað kvöld