Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Celine Dion stígur aftur á svið

Stórstjarnan og söngdívan Celine Dion tilkynnti aðdáendum sínum á samfélagsmiðlum í dag að hún myndi halda röð tónleika í París í Frakklandi í byrjun september. Dion sagði í tilkynningu sinni að heilsa hennar væri mun betri nú. Það væri besta gjöfin sem hún hefði getað óskað sér á afmæli sínu að geta haldið fleiri tónleika fyrir aðdáendur sína en söngkonan fagnaði 58 ára afmæli sínu í gær.Dion greindi frá því árið 2022 að hún hefði greinst með ólæknandi sjálfsónæmissjúkdóm, en sjúkdómurinn veldur stífleika í vöðvum. Af heilsufarslegum ástæðum hefur Dion haldið sig að miklu leyti frá sviðsljósinu síðan hún greindist með sjúkdóminn.Tónleikaferðalagi hennar var aflýst árið 2019, fyrst vegna Covid-19 faraldursins og síðar vegna heilsu hennar. Hún kom þó fram á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Pa
Celine Dion stígur aftur á svið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta