Ísraelsk stjórnvöld hafa samþykkt frumvarp að lögum sem heimila dauðarefsingu yfir palestínskum föngum sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverk.62 þingmenn ísraelska þingsins, þar á meðal Benjamin Netanyahu, greiddu atkvæði með frumvarpinu en 48 þingmenn á móti. Frumvarpið er umdeilt og hefur ákvörðunin um samþykki þess þegar verið kærð til dómstóla.Frumvarpið myndi gera dauðarefsingu að sjálfgefinni refsingu fyrir Palestínumenn á hernumda Vesturbakkanum sem eru fundnir sekir um að hafa af ásettu ráði framið mannskæðar árásir sem ísraelskir dómstólar flokka sem hryðjuverk.Mál Palestínumanna á Vesturbakkanum eru sjálfkrafa tekin fyrir af ísraelskum herdómstólum. Í frumvarpinu segir að við sérstakar aðstæður megi milda dóminn í lífstíðardóm. Frumvarpið kveður á um að aftökuaðferðin skuli vera