Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Árásir á olíuflutningaskip í Dubai

Árásin á olíuskipið í höfninni er ekki fyrsta árásin sem gerð hefur verið á höfnina í Dubai. Þessi mynd er frá drónaárás sem gerð var á höfnina 1. mars 2026.AP / Fatima ShbairÁrás var gerð á olíuflutningaskip sem var bundið við bryggju í höfn í Dubai í gær. Eldur braust út í kjölfarið en skipið, Al Salmi, var með fullfermi af hráolíu. Eigandi skipsins, Kuwait Petrolium, heldur því fram að skipið hafi verið skotmark og hefur varað við því að olía gæti lekið frá skipinu. Ekkert mannfall varð í árásinni og verið er að meta skemmdir á skipinu.Þá varð annað olíuskip fyrir árás í kvöld en skipið var statt 31 sjómílu fyrir utan Dubai, samkvæmt norska ríkisútvarpinu NRK. Flugskeyti hæfði stjórnborða skipsins og eldur kviknaði um borð í skipinu. Áhöfn skipsins slasaðist ekki í árásinni.
Árásir á olíuflutningaskip í Dubai

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta