Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrum fjármála- og efnahagsráðherra, segir stöðu efnahagskerfisins vera orðna alvarlega, fullt tilefni sé til þess að skapa breytt samtal og koma á nýrri þjóðarsátt.„Ég held að það sé kominn tími til þess að við setjumst niður dálítið alvarlega og veltum upp leiðum til þess að við getum sagt náð fram öllum helstu kostum þess sem gert var í þjóðarsáttinni.“Bjarni vísar þar í gömlu þjóðarsáttina sem gerð var árið 1990 um breyttar áherslur í kjarasamningum til að ná niður verðbólgunni, staðan í dag kalli líkt og þá eftir breyttu samtali.„Á einhverjum tímapunkti þarf bara að hamra á bremsuna, sko, og segja: „Heyrðu, nú verðum við öll að taka höndum saman.“Bergsteinn Sigurðsson ræddi við Bjarna í Silfrinu í kvöld.Bjarni Benediktss