Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

80 börn forskráð í skóla í Grindavík: „Það er ekkert samfélag án barna“

Það hefur ekki verið skólastarf í Grindavík frá því að bærinn var rýmdur 2023. Talsverðar skemmdir urðu á skólanum.„Hér voru skemmdirnar þess eðlis að þetta þrýstist svolítið saman. En hér höfum við skipt um gólfefni; það er búið að leggja nýja gólfdúka og steypa upp í skemmdir sem voru á veggjum og mála. Svo það er mikill munur að koma hérna inn og það er í rauninni munur í hverri viku sko,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur þegar hún gengur um ganga skólans.Stefnt er að því að bjóða upp á leikskólapláss frá tólf mánaða aldri. Ásrún segir mikilvægt að það séu hvatar fyrir fólk til að snúa aftur, einnig verði hugað að tómstundum barna samhliða skólastarfi.„Við finnum vel fyrir því að Grindvíkingar eru með heimþrá og margir vilja komast heim aftur. Við tókum
80 börn forskráð í skóla í Grindavík: „Það er ekkert samfélag án barna“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta