Samtökin Solaris segja Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, hafa haft fulla vitneskju um allt ferlið þegar samtökin aðstoðuðu flóttafólk frá Palestínu yfir landamærin til Egyptalands. Fólkið hafi allt fengið útgefið dvalarleyfi frá Útlendingastofnun, undirstofnun hennar sem dómsmálaráðherra, og stjórnvöld hafi skipulagt flug þeirra til Íslands.Guðrún hafi því farið með ósannindi í ummælum sínum í þættinum Spursmálum 28. nóvember í fyrra, þar sem hún sagði engan hafa vitað deili á fólkinu og að því hafi verið komið yfir landamærin með mútugreiðslum. Solaris hefur kært Guðrúnu fyrir ummælin.Guðrún sagðist í Facebook-færslu ætla að stefnan væri tilraun til að takmarka tjáningarfrelsi hennar og að hún myndi taka til varna í málinu, með þjóðarha