Formaður Landssambands lögreglumanna telur það ekki til marks um ótta meðal lögreglumanna þótt þeir skrifi ekki undir lögregluskýrslur með nafni. Miklu frekar að þeir vilji vernda friðhelgi einkalífs síns og fá tækifæri til að skilja lögreglubúninginn eftir í vinnunni. EKKI HÆTTULEGRA AÐ VERA LÖGREGLUMAÐUR Í DAG EN FYRIR 10 ÁRUM Mikil umræða hefur verið í tengslum við Höfðatorgsmálið svokallaða um breyttan veruleika; lögreglumenn voru sagðir upplifa hræðslu og ótta við erlenda glæpahópa.Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, kannast við þessa umræðu en segir hana ekki nýja af nálinni. „Ég held að veruleikinn hafi ekkert breyst á síðustu árum heldur miklu frekar á síðustu tveimur áratugum.“Umhverfi íslenskra lögreglumanna hafi tekið miklum breytingum eftir bankahrunið.