Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögregla varar við svikapóstum frá Skaattinum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikatölvupósti þar sem líkt er eftir tölvupósti frá Skattinum. Viðtakendur eru beðnir að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á vef sem líkist mjög island.is, en lénið sem kemur upp er skaatturinn.is.„Varist alla tengla sem ykkur eru sendir og lesið slíka pósta með tortryggni. Ef farið er á island.is ekki fara í gegnum tengil heldur skráið ykkur beint,“ segir lögregla og birtir mynd þar sem svikasíðan er sýnd við hlið island.is.Lögreglan„Í þessu tilviki er a) síðan fölsk og það sést þegar netslóðin er skoðuð betur „skaatturin.web.app“ en það er ekki augljóst í upphafi og sést ekki í síma,“ segir í tilkynningu.
Lögregla varar við svikapóstum frá Skaattinum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta