Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þúsundir krefjast afnáms kílómetragjaldsins

Rúmlega 14 þúsund manns hafa sett nafn sitt á undirskriftalista á Ísland.is þar sem þess er krafist að kílómetragjald á ökutæki verði fellt niður í heild sinni. Gjaldið hefur verið innheimt frá áramótum. Aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar segja kerfið ekki aðeins gallað í framkvæmd, heldur einnig óréttlátt í grunnatriðum.Almenningur greiði nú þegar bifreiðagjöld og eldsneytisverð hafi hækkað. Þá er sagt að skekkja sé í skráningu sem geti leitt til rangrar gjaldtöku í kílómetragjaldi.Söfnunin hófst í dag og stendur í mánuð, til 30 apríl.
Þúsundir krefjast afnáms kílómetragjaldsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta