Grímseyjarferjan Sæfari sigldi í dag í fyrsta sinn frá því 16. janúar. Ferjan hefur verið í slipp og engar áætlunarsiglingar verið til eyjarinnar í rúma tvo mánuði.Sæfari var sendur í reglubundið viðhald og viðgerðir 19. janúar, er fram kom í tilkynningu frá Akureyrarbæ. Verkið átti að taka þrjár vikur, en í dag, tíu vikum seinna komst Sæfari loks á siglingu á ný.Grímseyingar eru vitanlega ekki kátir með tafirnar og segja rekstur Vegagerðarinnar á ferjunni hafa verið bagalegan.Á meðan Sæfari var í slipp var Grímseyingum sagt að fara með flugi, en eins og veður og vindar hafa verið á landinu undanfarið hefur það ekki verið hægt. Fólk hefur því hvorki komist til né frá Grímsey í langan tíma.Viðgerðirnar höfðu ekki bara áhrif á Grímseyinga heldur einnig Hríseyinga þar sem Sæfari flytur til þe