Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins, segir að þrátt fyrir að verð á áli fari hækkandi og að eftirspurn aukist sé ólíklegt að það hafi jákvæð áhrif á álframleiðslu hér á landi til lengri tíma.Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað hækkað um 5% eftir að Íran gerði árásir á álver í Abu Dhabi, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Bahrein. Um 9% af áli heimsins er framleitt í Mið-Austurlöndum.„Ég held að það hafi aldrei gerst að stríðsátök hafi haft jákvæð áhrif á þennan iðnað,“ segir Sigríður. Átökum fylgi iðulega mikil óvissa sem hafi slæm áhrif á markaði. Einnig sé ekki svo einfalt að auka framleiðslu hratt til að bregðast við aukinni eftirspurn. Sem dæmi má þá nefna að ekki er gert ráð fyrir að álver Norðuráls á Grundartanga verði komið í full afköst fyrr en í júlí. VER