Sænsk yfirvöld hafa ákært mann sem er grunaður um að þvinga eiginkonu sína til kynlífsathafna með yfir 120 karlmönnum. Hann er ákærður fyrir stórfellda vændissölu, átta nauðganir og líkamsárás. SVT greinir frá.Brotin eru sögð hafa verið framin yfir rúmlega þriggja ára tímabil, frá 2022 til 2025. Hann gæti átt yfir höfði sér tveggja til tíu ára fangelsisdóm. Hann neitar sök.Maðurinn er 62 ára og var handtekinn í október í kjölfar þess að eiginkona hans leitaði til lögreglunnar í norðanverðri Svíþjóð. Hann hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan. 26 aðrir eru einnig ákærðir í málinu. EFTIRLIT, HÓTANIR OG OFBELDI Samkvæmt dómsskjölum þrýsti maðurinn á eiginkonu sína að framkvæma eða samþykkja kynlífsathafnir. Hann er sagður hafa fylgst með henni í gegnum eftirlitsmyndavélar, byrlað henni og síð