Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá dómi stefnu Samkeppniseftirlitisins gegn Samskipum. Eftirlitið freistaði þess að fá hækkaða þá sekt sem Samskip og dótturfélög þess verða að greiða vegna ólöglegs samráðs við Eimskip. Samkeppniseftirlitið hafði lagt 4,2 milljarða sekt á skipafélagið en úrskurðarnefnd samkeppnismála lækkað hana í 2,3 milljarða.Lögmaður Samskipa krafðist frávísunar vegna umfangs stefnunnar.Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sagði að stefna Samkeppniseftirlitsins væri óhóflega löng og án fordæma. Hún er 135 blaðsíður. Samkvæmt reglum dómstólasýslunnar um hámarkslengd stefna og greinargerða eiga þær að jafnaði ekki að vera lengri en um átta blaðsíður í almennum málum og 24 síður í algjörum undantekningatilvikum. FARIÐ ÚT FYRIR ÖLL MÖRK Í úrskurði sínum segir dómari að