Arctic Adventures, sem áformar 70 gistihús við Skaftafell, tjáði íbúum í Öræfum að til greina kæmi að breyta hönnun og hafa húsin einnar hæðar. Á íbúafundi var gagnrýnt að sérstakt skipulagsfrávik fyrir fjögur einkahús gildi um 70 gistihús án sérstakrar umfjöllunar. ÁFORMIN VORU MINNKUÐ EN SVO STÆKKUÐ AFTUR Upphaflega átti að byggja samtals 5200 fermetra á tveimur lóðum, Skaftafelli 3 og 4. Eftir mikil mótmæli var það minnkað í 35 hús á annarri lóðinni og samþykkt að það skyldi vera lágreist smáhýsi á einni hæð með svefnlofti og byggingarmagnið aðeins 1400 fermetrar.Við þetta fór fólk á svæðinu að beina athyglinni annað enda taldi það að björninn væri unninn. Það fór því fram hjá flestum þegar húsunum var fjölgað upp í 70 og þau hækkuð í tvær fullar hæðir.Nágrannar og fólk sem er umhuga