Framkvæmdastjóri FIB telur eðlilegt að stjórnvöld mæti gríðarlegum hækkunum á olíuverði með því að lækka álögur á eldsneyti tímabundið líkt og aðrar þjóðir hafa gert undanfarið. Fyrir því séu fordæmi í sögunni. Þá þurfi að veita olíufélögunum aukið aðhald.