Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði eigendur fósturheimilisins Gauksstaða í Garði fyrir meint brot á barnaverndarlögum. Rannsóknin hófst árið 2019 og var tekin skýrsla af fjölda fólks sem hafði búið á heimilinu sem börn.Til rannsóknar var hvort eigendur fósturheimilisins, Jón Steinar Konráðsson og Linda Angelique Elizondo, hefðu gerst brotlegir gegn barnaverndarlögum og brot í opinberu starfi. Þetta kemur fram í gögnum um rannsóknina sem Þetta helst hefur undir höndum og í öðrum heimildum.Rannsóknin hófst eftir að Barnaverndarstofa hafði sent kæru til lögreglunnar. Lögreglan lokaði fósturheimilinu eftir að rannsóknin hófst. Árið 2021 var rannsóknin felld niður á grundvelli skorts á sönnunargögnum.Einn af þeim sem gáfu vitnaskýrslu við rannsókn málsins er Aron Eiríksson. Hann bjó á heimilinu